VerslunVerslun
ÞJÁLFUNINÆfingataflaHeimsóknirAlgengar spurningarUM OKKURHAFA SAMBANDSamstarfSækja um starf

Karfan þín

0 vörur

Karfan er tóm.

SPURT OG SVARAÐ

ALGENGAR SPURNINGAR

Finnurðu ekki svarið? Sendu okkur línu á info@taeknithjalfun.is.

ÆFINGAR

Hvar eru æfingarnar?

Æfingarnar eru í Kórnum í Kópavogi.

Hvað eru æfingarnar langar?

Hver æfing er 45 mínútur. Hver mínúta er skipulögð, því við viljum hafa gott tempó á æfingunum okkar.

Á hvaða dögum eru æfingar?

Æft er á sunnudögum. Hægt er að skoða æfingatímana hérna.

Hvað þurfa leikmenn að taka með á æfingar?

Ætlast er til að leikmenn mæti í æfingafötunum okkar. Gott er að taka með vatnsbrúsa til þess að hafa á æfingasvæðinu, því við gefum stuttar vatnspásur ef þarf.

Geta foreldrar horft á æfingarnar?

Já, aðstandendur eru velkomnir að horfa á æfingar úr stúkunni. Það er ekki leyfilegt að horfa á æfingar af hliðarlínunni eða á sjálfum gervigrasvellinum.

Er hægt að prófa æfingu?

Það er ekki hægt að prófa æfingu undir neinum kringumstæðum. Eins er óleyfilegt að bjóða vini með á námskeiðið sem ekki er skráður.

ANNAÐ

Hversu mikil er aðkoma Gylfa að þjálfuninni?

Gylfi er yfirþjálfari og skipuleggur allar æfingar. Gylfi mætir á allar æfingar svo framarlega sem hann er ekki að æfa eða spila með félagsliði eða landsliði.

Hvað fylgir því að skrá sig í Tækniþjálfun Gylfa Sig?

Leikmenn sem eru skráðir alla önnina fá innifalið æfingasett (treyja og stuttbuxur) frá H-verslun.

Allir leikmenn sem koma í þjálfun fá miða sem veitir 15% afslátt af takkaskóm og boltum í H-verslun.

Leikmenn sem eru skráðir alla önnina fá forgang á skráningu í önnur námskeið eða viðburði á vegum okkar.

Hvar fæ ég æfingaföt?

Æfingafötin okkar má nálgast í H-verslun á Bíldshöfða 9. Við ætlumst til þess að leikmenn mæti í æfingafötunum á æfingar okkar.

Er systkinaafsláttur?

Já, það er 10% systkinaafsláttur sem reiknast sjálfkrafa þegar greitt er fyrir námskeið.

Geta allir skráð sig í þjálfunina?

Allir á aldrinum 6–16 ára geta skráð sig. Þjálfunin er einstaklingsmiðuð og hentar því byrjendum, jafnt fyrir þá leikmenn sem eru lengra komnir. Við pössum upp á að allir fái verkefni við hæfi.

Verslun

© Tækniþjálfun Gylfa Sig · Kt. 450724-0330

  • Þjálfarar
  • Æfingatafla
  • Heimsóknir
  • Algengar spurningar
  • Sagan
  • Samstarf
  • Sækja um starf
  • Skilmálar
  • info@taeknithjalfun.is
  • Sendu línu
  • Instagram
  • Facebook
  • TikTok
Byggt á Kling · Verð í ISK© 2026 Verslun